Smelltu á myndina til að skrá þig!
Við bjóðum upp á litrík og skemmtileg barnaföt frá sænska merkinu Maxomorra ásamt Fair trade fylgihlutum fyrir börn frá Global affairs. Maxomorra leggur áherslu á gæði og fallega hönnun á viðráðanlegu verði. Flestar flíkurnar eru úr 100% lífrænni bómull. Við leggjum metnað í að flytja inn vörumerki sem hafa ekki fengist áður hér á landi.
Einnig bjóðum við upp á vörur frá Fozia-London en þar er einnig um 100% lífræna bómull að ræða. Nýlega tókum við í sölu vörur frá breska merkinu Pili Pala, en fötin frá þeim eru öll úr lífrænni bómull og endurunnu efni og eru framleidd í Wales og á Englandi. Höfum við nú einnig bætt við Sundbleyjum frá sænska merkinu Zunblock sem eru þeim eiginleikum gæddar að hindra útfjólublátt ljós.
Í mars 2012 hófum við, fyrst á Íslandi, sölu á finnska merkinu Nosh Organics, þau eru hönnuð í Finnlandi og saumuð í Portugal og öll úr 100% lífrænni bómull.
Við vonum að þú njótir þess að skoða vöruúrvalið hérna á skoffin.is, ef einhverjar spurningar vakna er velkomið að hafa samband með því að senda tölvupóst á skoffin(hjá)skoffin.is eða hringja í síma 822-8178. Einnig er velkomið að koma og skoða vörurnar hjá okkur eftir samkomulagi.
2011-06-02
